Nú er komið að opnu húsi þar sem við efnum til prjónakvölds. Húsið opnar klukka 20:00.

Nú ætlum við að efna til prjónakvölds, sem orðið er að hefð, en slíkur viðburður hefur verið haldinn oft áður og gefist vel. Hér eru öllum áhugasömum um prjónaskap boðið að koma með prjónadótið sitt og taka þátt í þessum skemmtilega viðburði.

Samhliða þessu verður bílatengt myndbandsefni látið rúlla á skjanum.  Einnig höfum við sett tvo fornbíla í salinn sem ekki hafa sést lengi, svo það er nóg að skoða og gera hjá okkur þetta kvöld

Missum ekki af þessum einstaka viðburði. 

Að sjálfsögðu verður kaffi og kaffiveitingar. 

Allt bílaáhugafólk velkomið. 

Stjórnin. 

Umsjón kvöldsins er í höndum Stefaníu Hinriksdóttur