Það verður opið hús hjá okkur í Ögurhvarfi 11. mars. Húsið opnar kl 20:00
Á þessu kvöldi ætlum við að sýna ykkur eldri myndir úr starfi Fornbílaklúbbsins, sumar mjög gamlar, en aðrar eitthvað yngri. Hluti af sýningunni verða myndir sem að Georg Theodórsson hefur tekið, en hann gaf klúbbnum töluvert af sýnum myndum fyrir allnokkru síðan.
Hefðbundnar kaffiveitingar verða í boði. Ekki missa af þessum stórskemmtilegu myndum.
Endilega fjölmennum og eigum gott kvöld með félögunum.
Allt bílaáhugafólk velkomið.
Stjórnin