Já þá er kvöldrúnti og kaffispjalli, miðvikudaginn 2. júlí, sem hefst við Húsasmiðjuna í Skútuvogi. 

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við Húsasmiðjuna að Skútuvogi 16.

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr þar sem leið okkar liggur svo uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma á fornbílum upp á kaffiveitingar. 

Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla. 

Opið verður í félagsheimilinu eftir bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45 sirka. 

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með.

Stjórnin