Já þá er kvöldrúnti og kaffispjalli, miðvikudaginn 11. júní, sem hefst við Hjúkrunarheimilið Mörk. 

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við Hjúkrunarheimilið Mörk sem er að Suðurlandsbraut 66. 

Mæting þá á bilaplani við Mörkina þar sem við stoppum um stund og vistmenn geta fengið að líta gripina okkar.  Þaðan verður svo ekið Suðurlandsbrautuna í áttina að Hallgrimskirkju þar sem farið verður niður Skolavörðustiginn, ekið  meðfram tjörninni og austur Miklubraut upp í félagsheimili.

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr þar sem leið okkar liggur svo uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma á fornbílum upp á kaffiveitingar. 

Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla. 

Opið verður í félagsheimilinu eftir bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45 sirka. 

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan skemmtilega bíltúr.

Umsjónarmenn ferðar eru Ólafur Steinarsson og Stefán Örn Stefánsson.

Stjórnin