Já þá er komið að heimsókn í Esso safnið miðvikudaginn 25. júní. 

Við ætlum að hittast klukkan 20:00 við Esso safninu sem er í bakhúsinu á Skútuvog 11, en þangað flutti safnið fyrra og það er alltaf gaman að skoða og hittast í þessu glæsilega safni sem er svo nátengt bílasögu íslendinga.  

Ef ekki eru næg bílastæði við safnið að þá er hægt að leggja á bílastæðinu við Húsasmiðjuna í Skútuvogi. 

ATH.. Lokað verður í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þessa skemmtilegu heimsókn.  

Stjórnin