Þá er komið að hinni árlegu góugleði sem að þessu sinni verður haldinn þann 21. mars 2026.  

Vegna þess hvað það var gaman hjá okkur síðustu tvö ár höfum við ákveðið um að endurtaka enn og aftur Góugleði Fornbílaklúbbsins. Við munum halda þetta í félagsheimilinu okkar að Ögurhvarfi 2 laugardaginn 21. mars n.k. 

Búið er að panta á staðinn sömu meistarakokkana og áður sem koma að þessu sinn með tvírétta hlaðborð með heilgrilluð lambalæri og grillaðar kalkúnabringur sem og sitt rómaða meðlæti og slá upp sömu mögnuðu gæðaveislunni sem slegið hefur rækilega í gegn hjá okkur á gleðinni undanfarin ár. 

Tónlistarmennirnir sem Valdi Koppasali gaf nafnið ,,Hjómsveitin Úti á túni“ kemur aftur til okkar og spilar fyrir okkur nokkur vel valin lög og stefnir því í fjörugt og skemmtilegt kvöld hjá okkur. 

Verð fyrir hvern félaga er lægra en í fyrra eða 5.900,- kr og getur hver félagi tekið með sér einn gest á sama verði, hvort sem um ræðir maka eða aðila úr vinahópi eða fjölskyldu. Fólk sem ekki eru í klúbbnum en langar að koma á gleðina getur það, en þá er verðið 8.900,- kr á gest.

Þeir sem hafa áhuga er bent á að senda okkur tölvupóst hið snarasta merktan ,,Góugleði“ á formadur@fornbill.is eða hringa í síma félagsins sem er 895-8195 fyrir kl 22:00 sunnudaginn 14. mars 

Látum okkur ekki vanta á þessa skemmtiveislu sem stefnir í að verða frábær. 

 

Matseðillinn þetta árið.

Heilgrillað Lambalæri og Grilluð Kalkúnabringa

• Osta-Gratínkartöflur eða Bakaðar kartöflur.
• Ferskt salat m/Feta.
• Léttristað grænmeti.
• Maísbaunir.
• Hunangssinnepssósa.
• Rauðvíns og Bernaisesósa.