Fornbílaklúbbur Íslands tekur þátt í Brákarhátíð í Borgarnesi laugardaginn 28. júní.
 
Fyrir þá sem vilja aka saman í samfloti frá höfuðborgarsvæðinu með okkur í Fornbílaklúbbnum upp í Borgarnes. Við munum opna félagsheimilið okkar í Ögurhvarfi um kl 14:00 svo við getum fengið okkur smá kaffisopa áður en við leggjum af stað þaðan eigi síðar en kl 14:40.
 
Dagskrá: Bílasýning verður á planinu við Grillhúsið frá klukkan 16:00. Lifandi tónlist á milli 19 og 21 Cadillac Jazzband og CC Fleet Blues Band. Hamborgarar og grísarif á grillinu.
Þáttakendur: Fornbílafjélag Borgarfjarðar, Fornbílaklúbbur Íslands, Íslenski Cadillac Klúbburinn og Krúser Klúbburinn.
 
Endilega fjölmennum í þessa ferð. hlökkum til að sjá ykkur.
 
Tengill á viðburðinn á facebook. (9) Brákarhátíð | Facebook