Þá er komið að bíókvöldi númer 2 þennan vetrurinn í Ögurhvarfi. Húsið opnar klukkan 20:00.
Á þessu bíókvöldi munum við taka til sýningar íslensku kvikmyndaperluna Dalalíf frá árinu 1984, en hana þarf vart að kynna. Myndin er grátbrosleg og á köflum sprenghlægileg saga af auðnuleysingjunum og hrakfallabálkunum Þór og Danna sem að þessu sinni ákveða að máta sig við bústörfin á sveitabæ nokkrum með fádæma góðum árangri eða þannig sko.
Þetta er mynd sem engin aðdáandi að klassísku og góðu íslensku gríni, grátbroslegu rugli og hlátri ætti að láta hana fram hjá sér fara.
Sýning myndarinnar hefst um klukkan 20:15 og er sýningartími hennar um 83 mínútur. Boðið verður upp á popp og gos, sem og kaffi fyrir þá sem það vilja. Gert verður stutt hlé ef þurfa þykir.
Endilega fjölmennum og eigum gott bíókvöld með félögunum í Ögurhvarfi.
Stutt brot úr myndinni: Dalalíf – Einkennilegur þessi verslunarstjóri.
Stjórnin