Þá er komið að bíókvöldi í Ögurhvarfi. Húsið opnar kl 20:00
Að þessu sinni tökum við til sýningar á bíókvöldi mynd sem við erum búin að leita allnokuð að og höfum loksins fundið, en það er fyrsta myndin í Beverly Hills Cop myndaröðinni, en hún er frá árinu 1984 og skartar stórleikaranum Eddie Murphy í aðalhlutverki. Hér er á ferðinni stórskemmtileg hasargrínmynd sem fjallar um hin harðsnúna lögreglumann Axel Foley og samstarfsmenn hans í lögreglunni í Beverly Hills. Þetta er eins og áður sagði fyrsta myndin af alls þremur sem gerðar voru í Beverly Hills Cop seríunni, en við sýndum í fyrra mynd númer tvö.
Ekki missa af þessari stórskemmtilegu og eftirminnilegu mynd.
Sýning myndarinnar hefst um klukkan 20:15 og er sýningartími hennar um 105 mínútur. Boðið verður upp á popp og gos, sem og kaffi fyrir þá sem það vilja. Gert verður stutt hlé ef þurfa þykir.
Endilega fjölmennum og eigum gott bíókvöld með félögunum í Ögurhvarfi. Allt bílaáhugafólk velkomið.
Stikla myndarinnar: BEVERLY HILLS COP | Official Trailer | Paramount Movies
Stjórnin