![]() |
![]() |
|||
| Varahlutamarkaður | ||||
|
Fornbílaklúbbur Íslands hefur allt frá stofnun haft eitt af sínum markmiðum að safna varahlutum sem gæti nýst til uppgerða eða viðhalds og er selt á vægu gjaldi til félaga. Fljótlega fóru bílaumboðin að bjóða FBÍ varahluti og fleira sem áður var fleygt og eins hafa einstaklingar látið FBÍ nóta góðs við tiltektir frekar en farga hlutum. Í gegnum árinn hefur þessi lager stækkað mikið og er svo komið að geymslan er löngu búinn að sprengja af sér sitt pláss og hafa verið fengnir nokkrir gámar til geymslu hluta en þeir eru líka að fyllast. Á hverju hausti er Varahlutamarkaður og eins er er opið alla sunnudag (fyrir utan hátíðir, þegar ferðir FBÍ eru og ef veður hamlar för nefndarmanna) milli 13.30 og 15.30. Sími á Esjumel: 566-7838 og 660 1763. Byrjað er að flokka og mynda lager og er það sett fram á þessari síðu. Auðeldar það mönnum að sjá hvað er til og eins að panta fyrir þá sem eru fyrir utan höfuðborgina. Eins er hægt að pósta fyrirspurn á Fornbílaspjallinu um varahluti sem óskast keyptir eða hvort séu til hjá klúbbnum. Fyrirspurnum verður svarað eins fljótt og hægt er en varahlutanefnd er að störfum einu sinni í viku á Esjumel þegar opið er á sunnudögum. Viljum sérstaklega benda á að mikið úrval er af höggdeyfum, perum (6v og 12V), filterum, kertum og ljósasamlokum.Til er mikið af krómlistum ýmiskonar og eins er mikið úrval af vélahlutum bæði nýjum og notuðum. |
|||
| F O R N B Í L A K L Ú B B U R Í S L A N D S Kt. 490579-0369, P.O.Box 8615, 128 Reykjavík. |
||||