![]() |
![]() |
||||
| Starfsemi | |||||
|
Fornbílaklúbbur Íslands er virkur félagsskapur sem rekur félagsheimili, á sínar eigin bílageymslur, gefur út vandað félagsrit og sendir reglulega fréttabréf til félagsmanna sinna. Innan klúbbsins eru starfandi fjölmargar nefndir sem hver sinnir ákveðnum málaflokki. Á sumrin stendur klúbburinn fyrir hópakstri fornbíla og heldur sýningar á gömlum bílum fyrir almenning víða um land. Á fimm ára fresti heldur Fornbílaklúbburinn upp á afmæli bílsins á Íslandi með veglegri sýningu á fornbílum, gömlum ljósmyndum og öðrum minjum er tengjast sögu bílsins á Íslandi. Í aðstöðu klúbbsins í Árbæjarsafni (miðvikudagskvöld) ræða félagar áhugamál sín og skoða tímarit og bækur í eigu klúbbsins. Á opnu húsi yfir vetrarmánuðina er að jafnaði fjölbreytt dagskrá, svo sem fyrirlestrar, fræðsluferðir og myndasýningar.
|
||||
| F O R N B Í L A K L Ú B B U R Í S L A N D S Kt. 490579-0369, P.O.Box 8615, 128 Reykjavík. |
|||||