![]() |
![]() |
|
| Saga Fornbílaklúbbs Íslands | ||
Upphafið Fornbílaklúbbur Íslands var stofnaður á fjölmennum fundi í Templarahöllinni 19. maí árið 1977. Helstu hvatamenn að stofnun hans voru Bjarni Einarsson, Jóhann E. Björnsson, Kristján Jónsson og Þorsteinn Baldursson. Bjarni hafði þegar árið 1967 safnað saman fornbílum á höfuðborgarsvæðinu til sýningar á Laugardalsvellinum og með því frumherjastarfi vakti hann áhuga fjölmargra á mikilvægi varðveislu gamalla bíla sem síðar leiddi til stofnunar Fornbílaklúbbsins. Ferðir á vegum klúbbsins Fysta verkefni klúbbsins var hópakstur 17. júní 1977 í Reykjavík sem lauk með sýningu við Austurbæjarskólann. Þessi fyrsta ferð tókst með ágætum og vakti geysimikla athygli. Síðan hefur hópakstur og fornbílasýning á 17. júní verið fastur liður í starfi klúbbsins, borgarbúum til ómældrar ánægju. Fornbílaklúbburinn skipuleggur nú um 15 ferðir á hverju sumri, bæði skemmri og lengri. Meðal fastra ferða má nefna vorferð um Suðurnes, þjóðhátíðarakstur í Reykjavík, fornbíladag í Árbæjarsafni, langferðir, helgarferðir og hótelferðir, auk haustferðar á Þingvöll eða í Heiðmörk. Fyrsta verulega langferðin sem klúbburinn efndi til var hringferð í tilefni af tíu ára afmæli klúbbsins árið 1987. Þessi afmælishringferð var endurtekin árið 1997. Þá hefur tvisvar verið efnt til utanlandsferða á vegum klúbbsins. Farið var til Norðurlandanna árið 1992 og til Færeyja árið 1996, en klúbburinn hefur sterk vináttutengsl við fornbílaklúbbinn í Færeyjum, Föroya Ellis Akför. Bílageymslur og byggingar Fljótlega eftir stofnun klúbbsins hófst leit að hentugu húsnæði fyrir bíla félagsmanna. Lyktir urðu þær að haustið 1977 var tekið á leigu 600 fermetra húsnæði að Trönuhrauni 4 í Hafnarfirði. Þar höfðu félagarnir ekki aðeins geymsluaðstöðu heldur gátu þeir líka fengið viðgerðarstæði. Þetta reyndist klúbbnum of dýrt svo að 1979 var flutt í 170 fermetra húsnæði á Gelgjutanga í Reykjavík. Þar var einungis hægt að geyma bíla og hefur þeirri stefnu verið fylgt síðan að ekki eru leigð út viðgerðarstæði. Þarna leigði klúbburinn þar til hann eignaðist fyrsta geymsluhús sitt að Vagnhöfða 23 vorið 1981. Þetta var 180 fermetra skemma með geymslulofti fyrir varahluti. Þessa ágætu geymslu átti klúbburinn til 1984 þegar húsið var selt til brottflutnings. Þá var fengin lóð á Kjalarnesi og ráðist í byggingu stálgrindarhúss. Dæmið gekk upp vegna ótrúlegs dugnaðar félagsmanna og með rausnarlegri aðstoð margra fyrirtækja. Geymslan sem er 315 fermetrar að stærð var byggð árið 1986 og fylltist hún strax af bílum. Árið 1987 var hafinn undirbúningur að byggingu annarrar geymslu við hlið hinnar fyrri. Sú var byggð árið 1988 og er 374 fermetrar að stærð. Brátt kom í ljós að þessar geymslur nægðu ekki svo ráðist var í byggja þriðja húsið árið 1990 og er það 502 fermetrar. Fornbílaklúbburinn á í dag þessar þrjár geymslur á Esjumel skuldlausar, sem samtals eru um 1200 fermetrar að stærð og eru þær fullnýttar yfir vetrarmánuðina. Hafa tekjur af þeim ásamt félagsgjöldum staðið undir öllum framkvæmdum og arðsaukningu klúbbsins á liðnum áratug. Fundarstaðir og félagsaðstaða Klúbburinn fékk fyrsta húsnæðið til afnota fyrir félagsaðstöðu sína í upphafi árs 1980. Þetta var rishæð í gömlu húsi við Sölvhólsgötu í eigu Prentsmiðjunnar Eddu og var staðurinn nefndur Eddubær. Í þessu litla risi var opið hús vikulega í um þriggja ára skeið og var það félagsskapnum mikil lyftistöng. Síðan voru fundir færðir yfir á síðasta fimmtudag hvers mánaðar og haldnir í húsnæði starfsmannafélagsins Sóknar, fyrst við Freyjugötu og síðar í Skipholti. Árið 1991 tók klúbburinn á leigu húsnæði í Skeifunni 4 og voru fundir haldnir þar vikulega. Árið 1995 festi klúbburinn kaup á eigin húsnæði við Vegmúla 4. Var það tæpir 200 fermetrar að stærð með vönduðum innréttingum og nýttist klúbbnum hið besta. Á haustdögum 1997 barst klúbbnum hátt tilboð í húsnæðið frá nærliggjandi fyrirtæki og þegar salan var afstaðin stóð klúbburinn uppi með umtalsverða fjármuni. Tók stjórn klúbbsins þá ákvörðun að leita eftir því við borgarstjórann í Reykjavík að borgaryfirvöld létu klúbbnum í té lóð undir nýtt félagsheimili og bílasafn, sem áætlað er að verði um 1000 fermetrar að stærð. Eftir ströng fundarhöld og langa meðgöngu fékk klúbburinn lóð í Elliðaárdal, þar sem árið 2007 var byrjað á framkvæmdum á húsi hannað af Agli Guðmundssyni arkitekt. Þar til nýja húsið opnar verður fundaraðstaða klúbbsins á miðvikudagskvöldum í Árbæjarsafni og á Amokka Kópavogi. Útgáfumál Fyrsta tölublað af félagsriti klúbbsins, Fornbílnum, kom út í apríl 1979. Þetta var fjórblöðungur sem hafði að geyma fréttir, auglýsingar og fróðleik fyrir klúbbfélaga. Núna er blaðið orðið 32 blaðsíður að stærð með fjölbreyttu efni og kemur það út árlega. Vegna þess að þörf var á að koma ýmsum skilaboðum til félaganna oftar en Fornbíllinn kom út var hafin útgáfa á litlu fréttablaði árið 1987 sem nefnist Skilaboð. Þetta blað kemur nú út tíu sinnum á ári og flytur fréttir af fundum, ferðum og sýningum á vegum klúbbsins, auk auglýsinga frá félagsmönnum. Árið 1998 tók stjórn klúbbsins ákvörðun um að láta gera heimasíðu fyrir klúbbinn.Var hún síðan formlega opnuð 23. nóvember 1998, en heimasíðan hefur stækkað mikið í gegnum árin og tekið breytingum og er nú orðin aðal vetvangur frétta til félaga en síðan er einnig mikið heimsótt erlendis frá. Sýningar Einn þáttur í starfi Fornbílaklúbbsins, sem hvað mesta athygli hefur vakið, eru sýningar á bílum og ýmsu sem tilheyrir sögu bílsins á Íslandi. Glæsilegustu sýningar klúbbsins eru þær sem haldnar eru á fimm ára fresti í tilefni af afmæli bílsins á Íslandi. Sú fyrsta var haldin í Laugardalshöllinni í júní 1979. Síðan var sýning í tengslum við Auto 84 í húsi Árna Gíslasonar við Tangarhöfða og svo árin 1989, 1994, 1999 og 2004 í Laugardalshöllinni. Í maí 1997 var haldin sérstök afmælissýning í Perlunni í tilefni af 20 ára afmæli klúbbsinsog aftur í húsnæði B&L í tilefni 25 ára afmæli FBÍ árið 2002. Eins og áður hefur komið fram vinnur klúbburinn nú að undirbúningi bílasafns sem rísa mun í Elliðaárdalnum árið 2007-9. Þar verða í framtíðinni til sýnis fornbílar og munir og minjar sem tengjast sögu bílsins á Íslandi. Varahlutir Eins og gefur að skilja er jafnan mikil þörf á varahlutum í fornbíla hvort sem verið er að gera þá upp eða laga. Oft getur verið erfitt að ná í slíka varahluti og því hóf klúbburinn þegar á fyrsta ári að afla varahluta sem bílafyrirtæki tóku úr sölu. Hefur því verki verið haldið sleitulaust áfram og á klúbburinn nú talsverðan varahlutalager. Mikið starf hefur verið unnið við öflun hlutanna, flokkun þeirra og frágang. Félagar geta síðan keypt varahlutina við vægu verði, m.a. á árlegum varahlutamarkaði sem haldinn er í bílageymslum klúbbsins við Esjumel. Bílar í eigu klúbbsins Í árslok 1978 keypti Fornbílaklúbburinn björgunarbíl með gálga af bifreiðastöð Steindórs. Bíllinn er Chevrolet árgerð 1937 og hafði upphaflega verið rúta en síðar verið breytt. Klúbburinn á bílinn enn og hefur hann oft komið í góðar þarfir. Hann hefur nokkrum sinnum verið lagfærður og síðast var hann alveg tekinn í gegn og endurbyggður frá grunni árin 1991-93. Í október 1998 eignaðist klúbburinn síðan annan kranabíl, en sá er af gerðinni International árgerð 1967. Er hann notaður í geymslum klúbbsins við tilfærslu þungra varahluta og ógangfærra bíla. Gamli kraninn verður hins vegar áfram flaggskip klúbbsins. Söfn Fornbílaklúbbsins Snemma á ferli klúbbsins hófust menn handa við að safna gömlum ljósmyndum af bílum á Íslandi. Var þar lengst af forgöngumaður Bjarni Einarsson frá Túni, en hann var allra manna ötulastur við söfnun gamalla bílamynda. Er safnið nú orðið mikið af vöxtum og ómetanleg heimild. Hefur mikið starf verið unnið við myndskráningu, kópíeringar og frágang. Þá hafa stækkaðar myndir úr safninu prýtt veggi á sýningum klúbbsins og víðar. Klúbburinn á einnig allgott safn af bílabókum, handbókum, blöðum, bæklingum og kvikmyndum. Annað félagsstarf Stjórn Fornbílaklúbbsins og nefndir hans halda reglulega fundi. Á stjórnarfundum er auk hefðbundinna framkvæmdamála unnið að hagsmunamálum fornbílaeigenda og hefur á þeim vettvangi náðst ótrúlegur árangur. Má þar nefna að öll opinber gjöld hafa fengist afnumin af fornbílum, tryggingar verið stórlækkaðar, undanþágur fengnar frá reglum um búnað vegna skoðunar, leyfi fengið til að nota gamlar númeraplötur og innflutningsgjöld lagfærð. Stjórn Fornbílaklúbbsins starfaði einnig með Bílgreinasambandinu og Forsetaembættinu að uppgerð fyrsta forsetabíls lýðveldisins, sem er Packard árgerð 1942, en hann var tekinn í notkun á ný 17. júní 2008 sem hátíðabifreið forsetans. Fyrsti formaður Fornbílaklúbbsins var Jóhann E. Björnsson, en hann gegndi því starfi frá 1977 til 1985. Þá tók Rudolf Kristinsson við og var hann formaður til 1990 er Kristinn Snæland tók við. Fjórði formaður var Örn Sigurðsson, frá 1993 til 2003. Núverandi formaður klúbbsins er Sævar Pétursson. Óhætt er að fullyrða að ótrúlega mikið starf hefur verið unnið þann rúmlega aldarfjórðung sem Fornbílaklúbbur Íslands hefur starfað og hafa þar margir unnið óeigingjarnt starf. Hefur klúbbnum tekist að breyta áliti íslensku þjóðarinnar á fornbílum frá því að vera taldir ómerkilegt skran í það að vera gersemar sem jafnvel hæfa þjóðhöfðingja. Með þessari viðhorfsbreytingu var fornbílamennskan viðurkennd sem áhugavert menningarstarf og ómissandi þáttur í íslensku þjóðlífi. |
||
| F O R N B Í L A K L Ú B B U R Í S L A N D S Kt. 490579-0369, P.O.Box 8615, 128 Reykjavík. |
||