![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Markmið FBÍ | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Fornbílaklúbbur Íslands hefur það markmið að efla samheldni
með áhugamönnum og eigendum gamalla bíla og gæta hagsmuna þeirra í hvívetna. Jafnframt
vinnur Fornbílaklúbburinn að því að auka áhuga almennings fyrir gömlum bílum og
glæða skilning á varðveislu þeirra og minjagildi.
Allt frá stofnum Fornbílaklúbbsins árið 1977 hefur hann náð umtalsverðum árangri í hagsmunagæslu fornbílaeigenda. Nefna má sem dæmi niðurfellingu bifreiðagjalda og stórlækkun aðflutnings- og tryggingariðgjalda, auk þess sem fornbílar mega nú bera eldri gerðir skráningarmerkja. Þessi árangur er afrakstur ötuls starfs við að vekja skilning stjórnvalda á varðveislugildi gamalla bíla. Fornbílaklúbburinn stuðlar að persónulegum kynnum eigenda fornbíla á Íslandi og hvetur félagsmenn til samvinnu um áhugamál sín, þannig að þeir geti miðlað hverjir öðrum af reynslu sinni og kunnáttu í meðferð og varðveislu gamalla bíla.
Hérna er er hægt að sjá svör við algengum spurningum um FBÍ |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| F O R N B Í L A K L Ú B B U R Í S L A N D S Kt. 490579-0369, P.O.Box 8615, 128 Reykjavík. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||