| |
Lög Fornbílaklúbbs Íslands |
| |
|
| |
Samþykkt á aðalfundi félagsins 2010 |
| |
|
| 1. Kafli |
Heiti félagsins,
heimili og hlutverk |
| |
|
| 1. gr. |
Félagið heitir Fornbílaklúbbur Íslands. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. |
| |
|
| 2. gr. |
Starfsár félagsins og reikningsár er almanaksárið 1. janúar til 31. desember. |
| |
|
| 3. gr. |
Hlutverk félagsins er: |
| 1. |
Að efla samheldni
með eigendum og áhugamönnum um gamla bíla. |
| 2. |
Að gæta hagsmuna eigenda gamalla bíla í hvívetna og vera í fyrirsvari fyrir þá gagnvart innlendum og erlendum aðilum. |
| 3. |
Að vekja áhuga á gömlum bílum, efla skilning á minjagildi þeirra og stuðla að varðveislu þeirra m.a.með útvegun geymsluhúsnæðis fyrir þá. |
| 4. |
Að varðveita varahluti
sem félaginu áskotnast og miðla þeim til félagsmanna gegn sanngjörnu
gjaldi. |
| |
|
| 4. gr. |
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því: |
| 1. |
Að stuðla að persónulegum kynnum milli eigenda gamalla bíla á Íslandi. |
| 2. |
Að hvetja félagsmenn til samvinnu um áhugamál sín og að þeir miðli hver öðrum af reynslu sinni og kunnáttu í meðferð, viðhaldi og viðgerðum gamalla bíla. |
| 3. |
Að efna til sýninga, hópaksturs og/eða hæfnisaksturs á gömlum bílum a.m.k. einu sinni á ári. |
| 4. |
Að varðveita minjar sem tengjast sögu vélknúinna ökutækja á Íslandi. |
| |
|
| 2. Kafli |
Félagsmenn |
| |
|
| 5. gr. |
Allir áhugamenn um gömul vélknúin ökutæki geta orðið félagsmenn. |
| |
|
| 6. gr. |
Stjórn félagsins getur vikið manni úr félaginu eða neitað manni um inngöngu í félagið ef henni þykir efni standa til, en borið getur hann mál sitt undir almennan félagsfund. |
| |
|
| 7. gr. |
Árgjald félagsmanna skal ákveða á aðalfundi án tillits til fundarsóknar. Félagsmaður telst því aðeins virkur að hann greiði félagsgjald að fullu eigi síðar en þrem vikum fyrir aðalfund ár hvert. |
| |
|
| 8. gr. |
Aldur ökutækis skal vera 15 til 25 ár til að það teljist safngripur og 25 ár eða meira til að það falli undur skilgreininguna fornbíll, enda séu bílarnir sem mest í upprunalegri mynd. |
| |
|
| 9. gr. |
Félagsmenn eru ekki persónulega ábyrgir fyrir skuldum félagsins. |
| |
|
| 3. Kafli |
Aðalfundur |
| |
|
| 10. gr. |
Aðalfundur |
| 1. |
Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins. |
| 2. |
Aðalfund skal halda í maímánuði ár hvert. Til hans skal boðað með auglýsingum í blöðum eða á annan tryggilegan hátt með viku fyrirvara hið skemmsta og er hann þá lögmætur. Afl atkvæða ræður úrslitum mála nema annars sé getið í lögum þessum (sbr. 11. og 13. grein). |
| 3. |
Atkvæðisrétt á aðalfundi og/eða öðrum fundum félagsins, hafa aðeins virkir félagsmenn
(sbr. 7. grein). |
| 4. |
Kjörgengir eru aðeins þeir sem verið hafa virkir félagsmenn í að minnsta kosti tvö ár samfellt fyrir aðalfund og hafa náð 20 ára aldri. Launaðir félagsmenn eru ekki kjörgengir og hafa ekki rétt til stjórnarsetu. |
| |
|
| 11. gr. |
Þessi mál skulu tekin til meðferðar á aðalfundi. |
| 1. |
Formaður gefur skýrslu um störf félagsins. |
| 2. |
Gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins samþykkta af skoðunarmönnum. |
| 3. |
Formenn nefnda gefa skýrslu um störf nefnda. |
| 4. |
Kjör formanns og ennfremur þriggja manna í aðalstjórn og tveggja manna í varastjórn (sbr. 12. grein). |
| 5. |
Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara. |
| 6. |
Önnur mál. |
| |
|
| 12. gr. |
Komi fram tillaga um breytingu á lögum félagsins skal hún vera skrifleg og hafa borist stjórn þess eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund. Lögum verður aðeins breytt á aðalfundi. Í fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til lagabreytinga verði tekin til meðferðar á fundinum . Nái slík tillaga samþykki þriggja fjórðu hluta atkvæðisbærra fundarmanna, öðlast hún gildi. |
| |
|
| 4. Kafli |
Stjórn félagsins og stjórnarkjör |
| |
|
| 13. gr. |
|
| 1. |
Stjórn félagsins skal skipuð sjö mönnum og tveim til vara. Formaður skal kjörinn sérstaklega til tveggja ára. Aðrir stjórnarmenn skulu kjörnir í einu lagi til tveggja ára, þrír í senn og varamenn skulu kjörnir sérstaklega til eins árs í senn (sbr. 10. grein 4. lið). Sé formaður kjörinn úr röðum stjórnarmanna er ekki hafa lokið kjörtímabili sínu skal kjósa sérstaklega, einn stjórnarmann í hans stað til eins árs. Gangi stjórnarmaður úr stjórn fyrir næsta aðalfund eftir að hann er kjörinn skal kjósa sérstaklega einn mann til eins árs í hans stað. Kjörnir skulu tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara. |
| 2. |
Stjórn félagsins skipar tveggja manna kjörnefnd í janúarmánuði hvers árs. Nefndin setur upp framboðslista til stjórnarkjörs á aðalfundi klúbbsins, með nöfnum a.m.k. fimm kjörgengra manna og skal höfð hliðsjón af tilllögum sem berast kunna frá félagsmönnum. Kynna skal framboðslista mánuði fyrir aðalfund í Skilaboðum klúbbsins og á heimasíðunni „fornbill.is“. Komi fram tillaga um kjörgengan mann á lista frá 20 eða fleiri félagsmönnum og eigi síðar en einum mánuði fyrir aðalfund, er kjörnefnd skylt að virða þá tillögu. Stjórnarkjör skal vera skriflegt og vera undir stjórn kjörnefndar og í samstarfi við fundarstjóra. Að loknum aðalfundi er hlutverki kjörnefndar lokið. |
| 3. |
Stjórn félagsins skal koma saman til fundar fyrsta mánudag hvers mánaðar. Beri hann upp á helgidag eða aðrar óviðráðanlegar ástæður hamla fundi skal fundartími færður til næsta mánudags á eftir. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef fjórir aðalstjórnar- og einn varastjórnarmaður sækja fundinn hið fæsta. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Nú eru atkvæði jöfn og ræður þá atkvæði formanns úrslitum. |
| |
|
| 14. gr. |
|
| 1. |
Stjórn félagsins kýs sér ritara og gjaldkera. Hún tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og ræður málefnum þess með þeim takmörkunum sem lög þessi setja. Hún ber ábyrgð á fjárreiðum og eignum félagsins og annast skuldbindingar og samninga þess gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift tveggja eftirtalinna nægileg til staðfestu þess: Formanns og ritara eða formanns og gjaldkera. |
| 2. |
Stjórn félagsins er ekki heimilt að veðsetja eignir þess og/eða gera samninga sem samtals nema hærra hlutfalli en einum fimmta af brunabótamati eigna félagsins, að meðtöldum eldri skuldbyndingum, án þess að leggja tillögu um slíkt fyrir löglega boðaðan félagsfund. Fram komi í fundarboði að leita eigi heimildar fyrir aukinni veðsetningu eða samningagerð fyrir þess hönd. Slík heimild þarf samþykki þriggja fjórðu hluta atkvæðisbærra fundarmanna. |
| 3. |
Stjórn félagsins skipar nefndir og formenn þeirra. Allar nefndir skulu halda fundagerð og ferðanefnd skal halda skrá yfir þær bifreiðar sem taka þátt í ferðum og sýningum sem félagið stendur fyrir eða tekur þátt í. Að öðru leyti setur stjórn félagsins nefndum vinnureglur og skiptir með þeim verkum. |
| |
|
| 15. gr. |
|
| 1. |
Formaður er talsmaður félagsins og stýrir stjórnarfundum. Hann skal á aðalfundi ár hvert gefa skýrslu um störf stjórnarinnar og framkvæmdir í félaginu á liðnu starfsári. |
| 2. |
Ritari gegnir störfum formanns í forföllum. Verði formaður ófær um að gegna starfi sínu skal ritari taka við því til næsta aðalfundar enda skal þá fara fram formannskjör. Ritari skal boða stjórnarfund með tryggilegum hætti og með a.m.k. eins dags fyrirvara. Hann heldur bók yfir störf stjórnarinnar á fundum hennar. Í hana skal skrá öll mál sem þar ber á góma, allar tillögur er fram koma og niðurstöður í hverju máli. Ritari varðveitir öll bréf, send og móttekin. Hann sér um bréfaskriftir fyrir stjórnina og birtir félagsmönnum bréf og tilkynningar. Meðstjórnandi gegnir störfum ritara í forföllum samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar. |
| 3. |
Gjaldkeri varðveitir sjóði félagsins og sér um að ávaxta þá með sem bestum hætti hverju sinni í samráði við stjórn. Hann greiðir reikninga, annast innheimtur og bókhald og tekur saman ársreikninga og leggur fram til samþykktar á aðalfundi ár hvert. Meðstjórnandi gegnir störfum gjaldkera í forföllum samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar. |
| 4. |
Varamenn skulu sitja stórnarfundi. Þeir hafa tillögurétt en atkvæðisrétt hafa þeir ekki nema vanti aðalstjórnarmann á fundinn. Sá þeirra sem fær fleiri atkvæði í stjórnarkjöri telst fyrsti varamaður og er þar með fyrri til að öðlast atkvæðisrétt á stjórnarfundi. |
| |
|
| 5. Kafli |
Ýmis ákvæði |
| |
|
| 16. gr. |
|
| 1. |
Komi fram tillaga um það að félaginu skuli slitið skal hún sæta sömu meðferð og tillaga til lagabreytingar (sbr. 11. grein). |
| 2. |
Hætti félagið störfum skal Þjóðminjasafni Íslands falin umsjón eigna þess þar til nýtt félag, með sama markmið, hefur verið stofnað. |
| |
|
| |
|