Fornbílaklúbburinn á í
dag þrjár geymslur á Esjumel, sem samtals eru
um 1200 fermetrar að stærð
og eru þær fullnýttar
yfir vetrarmánuðina.
Formaður bílageymslunefndar er í síma 660 1763.
Bílageymslur eru opnar alla sunnudaga (fyrir utan hátíðir
og þegar ferðir FBÍ eru)
frá kl. 13 til 15.
Sími þar er 566 7838.
Leiga á stæði fyrir félagsmenn FBÍ
er kr. 6000 á mánuði fyrir venjulega stærð
af bíl
og kr. 8500 fyrir vörubíla.
Sjá nánar í
reglum neðar.
Ath. stæði er ekki fastur staður heldur pláss
í geymslum FBÍ, bílageymslunefnd raðar niður
bílum í stæði til að fá sem mesta
nýtingu úr geymslum.Æskilegt er að hafa samband
við bílageymslunefnd helgina áður en taka skal
bíl út, getur það sparað mönnum óþarfa
endurröðun og flýtt fyrir ef vitað er um þá
bíla sem fara út.
Biðlisti er eftir plássi en hægt er að fá
sig skrifaðan á biðlistan, en eingöngu félagsmenn geta fengið leigt stæði hjá
klúbbnum og þarf viðkomandi að vera í
klúbbnum til að geta farið á biðlista.
Panta skal hjá
eða
í síma 660 1763.
Fornbílaklúbbur Íslands áskilur sér
allan rétt til að fjarlæga bíl(a) og hefja
innheimtuaðgerðir hafi viðkomandi ekki staðið
í skilum með greiðslu fyrir pláss í bílageymslum.
Eingöngu FBÍ félagar geta sótt um leigustæð.
Sé ekki laust stæði getur viðkomandi óskað
eftir að vera settur á biðlista.
Þegar komið er að viðkomandi á biðlista
skal svara innan tveggja daga hvort stæðið verðið
tekið annars fer viðkomandi neðst á biðlistann.
Ekki er hægt að framselja pláss á biðlista.
Leigustæði er ekki hægt að framleigja.Sé
viðkomandi bíll seldur sem er með stæði fær
nýr eigandi að halda stæðinu hafi hann hinn nýi
eigandi gengið í FBÍ við eigandaskipti og undirritað
nýja leigusamning.
Vegna ákvæða leigusamnings vegna vanskila og trygginga
getur leigutaki ekki nýtt stæði sitt nema undir bíla
sem eru í eigu leigutaka.
Leiga á stæðum frá 1. janúar
2009 fyrir félagsmenn FBÍ er kr. 6000 á mánuði
fyrir bíl undir 6m, kr. 7500 fyrir bíl yfir 6m og kr.
8500 fyrir vörubíla.. Ef bíll er tekin út
yfir sumar (í þrjá mánuði) er mönnum
boðið að hafa frátekið pláss fyrir hálft
gjald. kr. 3000 (í þrjá mánuði mest),
um leið hafa þeir forgang um haustið og þurfa
ekki að panta stæði.
Leiga greiðist frá frá þeim tíma sem
stæði sé úthlutað þó að
ekki sé komið með viðkomandi bíl strax til
geymslu.
Hafi leigutaki ítrekað verið í vanskilum (án
þess að hafa samband við formann geymslunefndar eða
gjaldkera FBÍ hafi komið upp tímabundið vandamál
með greiðslur) missir hann stæði sitt og getur ekki
sótt um stæði nema leggja fram tryggingu fyrir greiðslum.
Geymslustæði eru eingöngu leigð undir bíla
sem eru 15 ára og eldri.
Þegar sótt er um stæði skal taka fram bíltegund
svo hægt sé að gera ráð fyrir honum þegar
raðað er inn, einnig skal tilkynna með fyrirvara ef breyting
verður á því.
Hver leigutaki getur verið með 3 stæði að hámarki.
FBÍ áskilur sér rétt til að taka bíla
af biðlista framfyrir vegna stærðar þegar raðað
er inn um haust ef hægt væri að koma fyrir minni bíl
sem er ekki fyrstur inn.