Mæting við félagsheimilið Rafstöðvarvegi kl 20:00. Lagt í hann um kl 20:30.
Við förum Rafstöðvarveg að hringtorgi strax til hægri upp gömlu Ártúnsbrekku og slaufu til hægri, nýju Ártúnsbrekku förum til hægri (önnur gatnam.) niður á Reykjanesbraut, keyrum hana að Kaplakrika, beygjum þar til hægri inn á Fjarðarhraun, keyrt að ljósum við Engidal, þar er farið inn á Álftanesveg og hann keyrður að hringtorgi. Út á öðrum gatnamótum inn á Norðurnesveg, beygt til vinstri á Suðurnesveg og hann keyrður aftur að hringtorginu, út af því sömu leið og við komum út á Álftanesveg og keyrt til baka,beygt til hægri á Garðaveg. Garðavegur keyrður út á enda og beygt til hægri á Herjólfsgötu, hún keyrð eins og leið liggur, Vesturgötu, Bæjartorg, þaðan á Fjarðargötu, Strandgötu, út á 2 gatnamótum á Flensborgartorgi og áfram Strandgötuna upp á Reykjanesbrautina í slaufunni. Reykjanesbraut keyrð eins og leið liggur að „lofthringtorginu“ og keyrt upp á það og út á Arnarnesveg, beygt til hægri Smárahvammsveg og til hægri í Hlíðarsmára þar sem við endum í kaffisopa á Amokka.
Á Amokka fá dömurnar frítt kaffi og köku en herrarnir sjá um sig sjálfir.
|