Ferðaupplýsingar fyrir 23. júní 2010

Ferð nr. 9. Miðnæturrúntur á Jónsmessu   Umsjón ferðar Sími
      Helgi 898 0660
Mæting Við Skarfabakka, Sundahöfn kl. 22.30      
         
Nánar um ferð og ferðalýsing :      
Brottför er Kl.23:00 og ætlum við þá að fara út á Klettagarðana til hægri og upp á Sæbraut, tökum þar hægri beyju áleiðis niður í bæ. Höldum leið okkar áfram meðfram ströndinni eftir Geirsgötu og svo Mýrargötu að hringtorgi við Ánanaust. Þar höldum við áfram eftir Ánanaust að hringtorgi við JL-húsið og förum þar áfram með ströndinni Eiðisgrandann, Norðurströnd og Bygggarða alveg út að Gróttu. Hér ætlum við að taka smá stopp og njóta útsýnisins og sólarlagsins.
Leggjum af stað til baka niður að Lindarbraut sem við beygjum inn á og ökum til enda. Þar förum við til vinstri inn á Suðurströnd og ökum að Nesvegi sem við beygjum inná til hægri og ökum áfram Ægisíðu og Starhaga að Suðurgötu. Förum inn á Suðurgötu til hægri og strax til vinstri inn á Þorragötu sem við ökum þar til við förum Njarðargötu ti vinstri. Förum Njarðargötuna að Hringbraut og þar til hægri. Förum á fyrrstu ljósum til hægri inn á Nauthólsveg og svo Flugvallarbraut og Hlíðarfót út í Nauthólsvík þar sem við endum rúnt kvöldsins. Hér er gott að fá sér göngutúr og láta hugan reika um sögusagnir Jónsmessunar og sannleiksgildi þeirra.

Jónsmessan
Ýmis þjóðtrú tengist Jónsmessu og er gaman að tilefni kvöldsins að rifja eitthvað af þeim upp. Jónsmessunótt er ein þeirra fjögurra nátta í Íslenskri þjóðtrú sem eru taldar hvað magnaðastar og þá eiga allskonar dularfullir hlutir að geta gerst. Algeng er sú trú að döggin sem fellur á Jónsmessunót eigi að vera heilnæm með eindæmum, og til að öðlast lækningarmátt hennar eigi menn að velta sér alsberir upp úr henni. Þjóðsagan segir að geri menn það batni þeim allir sjúkdómar og þeim verði ekki misdægurt næsta árið á eftir. Á Jónsmessunótt á að vera unnt að finna náttúrusteina. Þar er um að ræða lausnarsteina til að hjálpa jóðsjúkum konum eða kúm, óskastein, varnarstein móti öllu illi, lífsteina sem græða hvert sár og hulinhjálmstein. Til gamans má geta að Hulinhjálmsteinn er sagður dökkrauður að lit. Og samkvæmt þjóðtrúnni skal geyma hann undir vinstri armi, og vilji maður gera sig ósýnilegan á að fela steininn í vinstri lófa vafðan í hárlokk eða blað svo hvergi sjái á hann. Þá verður maður ósýnilegur en sér þó allt sem fram fer umhverfis mann. Einnig eru nokkrar jurtir sem gott er að tína á Jónsmessunótt. Hornblöðgu við kvefi, Maríustakk við graftarkýlum, korndún af víði á sár milli tánna, Brennisóley við húðkvillum, Mjaðjurt til að finna hver hafi stolið af manni. Fjögra laufa smári á að geta lokið upp hverri þeirri læsingu sem hann er borinn að. Draumgras hjálpar mönnum til að dreyma það sem þeim er forvitni á.

         
Kostnaður ef einhver :