Ferðaupplýsingar fyrir 14. júlí 2010

Ferð nr. 15. Smábílarúntur   Umsjón ferðar Sími
      Gunnar 897 4585
Mæting Við Hamborgarabúlluna, Geirsgötu, kl. 20.00      
         
Nánar um ferð og ferðalýsing :      
Að þessu sinni söfnumst við saman á planinu hjá Hamborgarabúllu Tómasar við Geirsgötu 1. Kl.19.30 einnig er hægt að dreifa sér á planið við höfnina ef plássleysi er mikið. Boðið verður upp á kaffi á meðan menn safnast saman og spjalla. Og að sjálfsögðu er tilboð aldarinnar alltaf mjög vinsælt. Borgari, franskar og kók. Síðan verður haldið af stað stundvíslega kl.20.30.
Akstursleið: Smágötur þingholtana þræddar. Sjá kort Þeir sem ekki treysta sér í þröngar götur þurfa að kynna sér hjáleiðir.
Ekið frá Geirsgötu til austurs og ekið að Snorrabraut, þar beygt upp til hægri ekinn Laugavegur niður að Vitastíg og þar beygt upp til vinstri, Vitastígur er síðan ekinn á enda að Bergþórugötu, þar er beygt til hægri og ekið að Frakkastíg. Við gatnamót Bergþórugötu og Frakkastígs er beygt til vinstri og ekið upp á Skólavörðuholt, beygt inn á planið hjá Tækniskólanum og stoppað, ef veður er gott er flott að taka myndir hér, en aðeins er þó um stutt stopp að ræða. (10mín)
Ekið síðan frá Skólavörðuholti niður Skólavörðustíg niður að Njálsgötu og beygt til hægri, ekið að Bjarnarstíg, þar beygt til hægri (ÞRÖNG GATA) og beygt síðan til vinstri inn á Sólavörðustíg og hann ekinn að Kárastíg, svo Frakkastíg til vinstri og ekið niður að Grettisgötu og hún ekin til vinstri. Grettisgata er síðan ekin að Klapparstíg og þar beygt til vinstri. Ekið sem leið liggur yfir Skólavörðustíg og að Óðinstorgi, beygt til vinstri upp LokastígNjarðargötu og hún til hægri að Freyjugötu og þar beygt til hægri. Freyjugata er síðan ekin að Válastíg og þar Beygt til vinstri (MJÖG ÞRÖNG GATA 190cm). Komið er að Nönnugötu og þar beygt til hægri og ekið að Bragatorgi og beygt til vinstri niður BaldursgötuLaufásvegi og þar ekið að hringtorgi og farið inn á Þingholtsstræti sem er ekið að Skálholtsstíg og hann farinn niður til vinstri. Beygt til hægri inn í MiðstrætiBókhlöðustíg og þar beygt niður til vinstri, svo til vinstri LaufásvegSkálholtsstíg sem við förum niður til hægri að Fríkirkjuvegi og þar til hægri og inn í Lækjargötu. Fyrir þá sem vilja fá sér meira kaffi eða annan hamborgara ætlum við að enda aftur hjá Tomma við Geirsgötu.


         
Kostnaður ef einhver :