Ferðaupplýsingar fyrir 07. júlí 2010

Ferð nr. 13. Muscle-car rúntur   Umsjón ferðar Sími
      Helgi 898 0660
Mæting Húsinu okkar Rafstöðvarvegi kl. 20.00      
         
Nánar um ferð og ferðalýsing :      
Sögusagnir ganga um mikla Muscel-car menningu í Hafnarfirði í gengum tíðina, við ætlum að kíkja á málið að tilefni dagsins.

Ferðin hefst við félagsheimilið í Elliðaárdal og er mæting kl. 20:00.
Við leggjum af stað kl 20:30 og stefnum á Bíldshöfða sem við ökum upp að Höfðabakka sem við beygjum inná til hægri. Höldum áfram Höfðabakkann að Stekkjabakka og beygum til hægri og ökum að hringtorgi við mislæg gatnamót á Reykjanesbraut og förum þar út á fyrstu beygju og út á Reykjanesbrautina sem við ökum inn í Hafnarfjörð. Við Kapplakrika förum við Reykjanesbrautina til vinstri og ökum að hringtorgi og förum til hægri inn á Lækjargötuna, niður að hringtorgi og þar förum við inn á Hringbrautina sem við ökum á enda. Þar komum við að umferðarljósum sem við förum yfir (beint á grænu) á Suðurbrautina sem við ökum að Hvaleyrarbratu sem við beygjum inná til hægri og ökum að Strandgötu sem við förum niður í miðbæ og ökum þar um hver með sýnu nefi í smá stund og endum svo öll á Stöðinni við Reykjarvíkurveg.
         
Kostnaður ef einhver :