Styrktaraðilar Fornbílasafnsins


Að fyrirmynd erlendra bílasafna í einkaeigu hyggst Fornbílaklúbbur Íslands bjóða félögum sínum að gerast styrktaraðilar fornbílasafnsins í Elliðaárdal.
Hægt er að velja um þrjár gerðir styrkja:


Bronsstyrkur 10.000 kr.
Silfurstyrkur 50.000 kr.
Gullstyrkur 100.000 kr.


Styrkveitendur fá send sérstök viðurkenningarskjöl, auk þess sem nöfn þeirra verða sett upp á vegg í fornbílasafninu og birt í skilaboðunum. Söfnun styrkjanna er þegar hafin og er áhugasömum bent á bankareikning klúbbsins 0135-15-370282 kt. 490579-0369. Í skýringarreit þarf að rita orðið „safnstyrkur“. Einnig er hægt að nota kreditkort með því að senda uppl. á jsl@itn.is eða í síma 892 0045. Posi er einnig alltaf með í ferðum okkar og á Esjumelnum og er auðvelt að ganga frá styrk þannig.

Ef vel tekst til við öflun styrkja mun framkvæmdum við safnahúsið ljúka að fullu á þessu ári. Það er því von stjórnar klúbbsins að félagar standi vel við bakið á klúbbnum sínum og hjálpi honum yfir síðasta þröskuldinn í þessu stærsta einstaka verkefni í sögu hans.