Bílasafn og
félagsheimili FBÍ
Hér munu verða birtar fréttir og myndir af
framkvæmdum
við byggingu FBÍ í Elliðaárdal.
Húsið selt og afhent
Ákveðið var á félagsfundi og staðfest á aðalfundi 2011 að selja húsið. Í ágúst var gengið frá kaupsamningi vegna sölu og í október var skrifað undir afsal og þar með lauk þessum byggingarframkvæmdum klúbbsins. [55.10.2011]

Myndir úr dalnum
Hér fyrir ofan eru nokkrar myndir í húsnæði okkar í Elliðaárdalnum, en undanfarið hefur verið mikið unnið í þeim parti sem mun hýsa félagsheimilið. Búið er að flísaleggja eldhúsið, klæða veggi og núna er verið að sparsla veggi og undirbúa undir málningu. Kerfisloft er komið upp og ljós í það, en endanlega verður gengið frá því þegar önnur vinna er búin. Glerveggurinn, sem skilur stóra salinn frá, er í smíðum og verður settur upp eftir að parket verður sett á gólfið. [15.04.2010]
Styrktaraðilar Fornbílasafnsins
Að fyrirmynd erlendra bílasafna í einkaeigu hyggst Fornbílaklúbbur Íslands bjóða félögum sínum að gerast styrktaraðilar fornbílasafnsins í Elliðaárdal. Hægt er að velja um þrjár gerðir styrkja:
Bronsstyrkur 10.000 kr.
Silfurstyrkur 50.000 kr.
Gullstyrkur 100.000 kr.
Styrkveitendur fá send sérstök viðurkenningarskjöl, auk þess sem nöfn þeirra verða sett upp á vegg í fornbílasafninu og birt í skilaboðunum. Söfnun styrkjanna er þegar hafin og er áhugasömum bent á bankareikning klúbbsins
0135-15-370282 kt. 490579-0369. Í skýringarreit þarf að rita orðið „safnstyrkur“. Ef vel tekst til við öflun styrkja mun framkvæmdum við safnahúsið ljúka að fullu á þessu ári. Það er því von stjórnar klúbbsins að félagar standi vel við bakið á klúbbnum sínum og hjálpi honum yfir síðasta þröskuldinn í þessu stærsta einstaka verkefni í sögu hans. [31.03.2010]
Nýjar myndir úr dalnum
Undanfarið hefur verið unnið við að einangra og klæða veggi í eldhúsi, geymslum o. fl. stöðum. Búið er að pússa stiga og farið verður að flísaleggja þá eftir páska, en múrverk á sökkli er að ljúka. Eins er búið að pússa í kringum alla glugga og næsta verk er að vinna það undir málun. [23.03.2010]
Fréttir úr dalnum
Í gærkvöldi mætti vaskur hópur félaga til að taka loka hnykkinn í húsi klúbbsins, svo hægt sé að lakka yfir gólfið áður en settir verða inn þeir bílar sem hafa fengið vetrarsetu í húsinu. Allt rusl var tekið og eins var verið að hreinsa gólfin, sópa og ryksuga. Í kvöld verður sett umferð af lakki til að loka gólfinu og á mánudag verður sett upp öryggiskerfi í húsið. [15.10.2009]
Október 2009
Búið er að flota yfir gólf á 2. hæð og unnið er núna á fullu við að sprautusparsla veggi, en mjög gott tilboð fékkst í verkið svo ákveðið var að drífa í því . Einnig er núna verið að bora göt vegna salerna og annarra lagna. Strax um eða eftir helgi verður síðan farið í að hreinsa gólfið og bera á það til að varna að olía eða annað smitist í steypuna. Stefnt er síðan að geta tekið inn þá bíla sem verða í vetrargeymslu um miðjan mánuð enda verður þá öll óþrifavinna búin. [07.10.2009]
Fréttir af byggingu
Nú er loksins búið að loka húsinu þar sem ísetningu rúða og innkeyrsluhurða er lokið, gönguhurðir eru reyndar til bráðabirgða þar til endanlegar hurðir verða keyptar. Nýlega var hreinsað til í kringum húsið og rusli hent, einnig var grasið á lóðinni slegið, svo að umhverfið er orðið meira sæmandi uppkomnu húsi. Fljótlega verður byrjað að vinna inni og fyrsta verkið verður að leggja hitamottur í gólfið á félagsheimilinu og flota yfir. Búið er að fá tilboð í innveggi vegna efri hæðar og einnig til að loka af aðstöðu niðri. Áherslan verður á félagsaðstöðuna og salurinn látinn bíða seinni tíma. Bygginganefnd fer nú í að raða niður verkefnum vegna aðstöðunnar og þegar gólfið á efri hæð er orðið þurrt hefst vinna þar. [03.09.2009]
Fréttir úr dalnum
Stutt er í lokafrágang á þaki byggingar klúbbsins við Rafstöðvarveg og á mánudag verður farið í að glerja svo að stutt er í að húsið lokast. Í síðustu viku var gólfefni, fyrir félagsaðstöðu, ganga og eldhús, keypt á góðum kjörum og kemur það í hús í lok vikunnar. Einnig er verið að ganga frá kaupum á innihurðum. [24.06.2009]

Húsið klætt
Vel gengur með byggingu klúbbsins við Rafstöðvarveg
og er nú unnið við klæðningu hússins.Í
dag var verið að undirbúa að glerja, en búið
er að setja alla glugga í, nema eftir er smá frágangur
á stóra glugganum í enda hússins. Burður
fyrir þakið er klár og er næsta skref að
einangra og klæða, en rigningar undanfarið hafa tafið
það verk. Óhætt er að segja að verkið
hafi gengið vel þegar það loks fór af
stað, en mikil vinna hefur verið lögð í
að ná sem bestu samningum vegna aðfanga og verkþátta.
Umsjón á verkinu hefur bygginganefnd í samvinnu
við stjórn klúbbsins. En hita og þunga þessara
framkvæmda hafa Sævar Pétursson formaður
og Halldór Gíslason ritari borið vegna samninga,
leitun tilboða, eftirliti, lánafyrirgreiðslu og fl.
Utan þess hefur Halldór lagt til hundruði vinnutíma
vegna funda, tilboða, öflun leyfa, samninga og ekki síst
vegna beinnar vinnu með flutningum á efni. Margir fleiri
aðilar hafa einnig komið að góðri fyrirgreiðslu,
en haldin er skrá yfir þá aðila sem hafa
styrkt klúbbinn í þessum framkvæmdum.
[26.09.2008]

Gengur vel með húsið
Vel gengur að einangra húsið en það er
gert að utan og síðan kemur flísaklæðning
sem ysta byrði. Einnig er búið að setja alla
glugga í nema þann stóra á gaflinum en
glerjað verður um leið og gengið verður frá
klæðingu. Burðarbitað með tilheyrandi stífum
eru komnir á sinn stað. [27.08.2008]
Þakbitar komnir á sinn stað
Nú er byrjað að vinna á fullu í húsinu
við að loka því og er búið að
koma fyrir þakbitum og í vikunni verður gengið
frá stífum. Einnig er byrjað á samsetningu
á gluggum og verða fyrstu gluggar settir í fljótlega.
Búið er að semja um kaup á klæðningu
og er áætlað að byrja á klæðningu
um mánaðarmót ágú. - sept. [12.08.2008]
Unnið í húsinu
Í gærkvöldi var stjórn og bygginganefnd
mætt til að losa þakplötur úr gámi
svo ekki þurfi að að tefja byggingaraðila þegar
þeir mæta væntanlega eftir helgina. Einnig var
tekið til í kringum húsið og rusli hent. Má
segja að þetta hafi verið fyrsta skrefið í
að kalla út mannskap til sjálfboðavinnu við
húsið, en nú fer að verða meira um verk
sem félagar geta unnið í húsinu. [29.05.2008]jsl

Fyrsti fundurinn í nýja húsinu
Í gærkvöldi var stjórnarfundur og partur
af honum haldinn í nýja húsinu okkar sem er
óðum að taka á sig mynd. Eftir er að steypa
3-4 veggstubba og loft í geymslum á efri hæð
og þar með er steypuvinnu lokið. Núna er verið
að vinna í að fá tilboð í þakklæðningu
og glugga. Þar með ætti að vera nokkuð ljóst
að húsið verður orðið lokað fyrir
vetur.Voru stjórnarmenn sammála um að þeir
verktakar sem hafa komið að þessu hingað til hafa
unnið hratt og vandað til verka. Þess má geta
að ein af ferðum sumars þann 29 .ágúst
hefst við nýja húsið og verður þá
gott tækifæri fyrir félaga til að skoða
húsnæðið. [04.07.2007]jsl

Bygging að myndast
Eins og þessar myndir sýna þá gengur hratt
að steypa veggi við byggingu okkar við Rafstöðvarveg,
og ekki er langt í að það verði búið
að klára alla útveggi. [23.04.2007]jsl

Gólfplata steypt
Í gærkvöldi var unnið við að steypa
gólfplötuna í húsinu og var síðan
slípað um nótina. Fljótlega eftir páska
verður síðan farið í reisa mót
fyrir veggi. [04.04.2007]jsl

Sökklar tilbúnir
Allt gengur vel við byggingu okkar í Elliðarárdal,
búið er að steypa sökkla og verður nú
farið í að fylla í og leggja gólflagnir.
Veður hefur lítið tafið,nema þessi smá
frostakafli í byrjun febrúar. [23.02.2007]jsl

Vinna hafin
Nú er hafin vinna við sökklana þar sem hið
nýja félagsheimili okkar mun rísa í
Elliðarárdal, fljótlega verður síðan
farið í að reisa steypumót fyrir veggi. Búið
er að reisa byggingarkrana og flytja mótin á staðinn.
[31.01.2007]jsl
Stór áfangi í byggingamálum
Loksins er hægt að tilkynna að öll leyfi vegna
byggingar okkar í Elliðarárdal eru í höfn.
Það hefur ekki gegnið vandæðalust fyrir
sig að fá endanlegt byggingaleyfi vegna ýmsa mála
sem hafa tafið, bæði vegna breytinga á teikningum
og eins breytinga á tengihúsi OR við Rafheima.
Undafarið hefur verið unnið við lagnir og annan
frágang vegna jarðvegskipta og mun verktaki húsinns
flytja tæki og tól á byggingastað milli
jóla og nýárs og hefja framkvæmdir strax
eftir áramót. Ekki er ólíklegt að
menn fari að sjá húsið rísa fljótlega
á nýju ári ef veðurfar helst þokkalegt.
[07.12.2006]jsl
14-03-2006
22-02-2006 Gengur vel með grunn

15-02-2006 Framkvæmdir hafnar !
Í gær hófust jarðvegsframkvæmdir vegna
byggingu FBÍ í Elliðaárdal. Heimir og Þorgeir
ehf áttu hagkvæmasta tilboðið í þennan
hluta verksins og var samið við þá í
byrjun febrúar, en verklok er 1. apríl. Á næstu
dögum verða send út tilboðsgögn í
sjálfa bygginguna en tilboðum skal skila inn fyrir 1.
apríl. Má búast við að búið
verði að semja við byggingaverktaka fyrir 1. maí.
Hægt er að fylgjast nánar með framkvæmdum
á þessari síðu og eins
myndaseríu af svæðinu eftir því hvað verkinu líður.
30-12-2005 Fyrsta skóflustunga
Í dag var athöfn í Elliðaárdal við
hlið Rafheima, þegar Sævar Pétursson formaður
FBÍ, og Alfreð Þorsteinsson, Orkuveitan, tóku
saman fyrstu skóflustunguna að nýju húsnæði
Fornbílaklúbbs Íslands. Húsið mun
rýma sýningarsal og félagsheimili klúbbsins
og um leið er Orkuveitan að byggja við Rafheima, rými
sem er hugsað sem þjónustubygging fyrir gesti Elliðaárdals,
en hús FBÍ mun tengjast því rými.
Að lokinni athöfn bauð Orkuveitan í kaffi og
meðlæti í Rafheimum. Áætlað er
að hús klúbbsins verði risið í
lok næsta sumars og verði tekið í notkun fyrir
vorið 2007.
Hérna
er hægt að sjá myndir frá þessari
athöfn.

Teikningar pdf
Afstöðumynd
Grunnmynd
Þversnið
Útlit
Myndir
Framkvæmdir
Útlit 1
Útlit 2
Sýningarsalur
Grunnmynd 1. hæð
Grunnmynd 2. hæð
Félagsheimili
Útlitsteikning
Áfangar
framkvæmda
Október 2011
Skrifað undir afsl og klúburinn laus frá þessari framkvæmd.
Ágúst 2011
Húsið selt og afhent.
Október 2010
Salur leigður undir bíla í vetrargeymslu.
Haust 2010
Allar framkvæmdir setta á bið.
Mars 2010
Múrverki inni lokið, lagt í eldhúsgólf, einangrað og veggir klæddir.
Október 2009
Salur leigður undir bíla í vetrargeymslu.
Október 2009
Flotað yfir gólf á 2. hæð, veggir sléttaðir og sprutusparslaðir.
September 2009
Húsinu lokað, innkeyrsluhurðir komnar í.
Ágúst 2009
Gengið frá þaki.
September 2008
Flísaklæðing að utan byrjuð.
September 2008
Byrjað eða glerja sep-okt.
September 2008
Þak komið á og unniðí einangrun þess.
Ágúst 2008
Gluggar komnir í og
unnið í einangrun.
Ágúst 2008
Byrjað að vinna glugga,
þakbitar komnir upp.
Júní 2008
Frágangur bílstæða fyrir
svæðið lokið ásamt lýsingu.
Maí 2008
Efni í þak loks komið eftir afhendingartafir erlendis.
Janúar 2008
Efni í þak að berast,
einnig gluggar.
Desember 2007
Borgin búinn að malbika sameiginleg bílastæði .
September 2007
Steypuvinnu lokið.
16. apríl 2007
Byrjað á útveggjum.
03. apríl 2007
Gólfplata steypt.
23. febrúar 2007
Sökklar tilbúnir.
15. janúar 2007
Verktaki hefur vinnu við sökkla.
07. desember 2006
Byggingarleyfi endalega í höfn, verktaki flytur tæki
á staðinn milli jóla og nýárs.
14. febrúar 2006
Verktaki hefur formlega
jarðvegs-framkvæmdir.
13. febrúar 2006
Svæði girt af.
07. febrúar 2006
Bygginga / framkvæmdaleyfi
undirritað af FBÍ.
07. febrúar 2006
Tilboði Heimis og Þorgeirs ehf
í jarðvegsvinnu tekið og samið
um framkvæmdir. Verklok
þessa þáttar verða 1. apríl.
31. janúar 2006
Byggingaleyfi/
framkvæmdaleyfi gefið út.
30. desember 2005
Formaður FBÍ tekur fyrstu skóflustung byggingu
FBÍ.
22. desember 2005
Tilboð í jarðvegs-famkvæmdir opnuð, VSÓ
yfirfer tilboð.