| Þarf ég að eiga fornbíl til að ganga í
FBÍ? |
| |
| Nei, algengur misskilningur er að viðkomandi þurfi
að eiga fornbíl til að ganga í FBÍ.
Það er öllum frjálst að ganga
í FBÍ, það eina sem þarf er að
hafa áhuga á bílum, sögu eða bara
til að styrkja klúbb sem stendur vörð um
varðveislu samgöngutækja. Enda
eru margir félagar í klúbbnum sem eru ekki
með fornbíl en hafa gaman af að fylgjast með
okkur. |
| |
| Hvað er fornbíll? |
| |
Opinber skilgreining á fornbíl miðast við að aldur bílsins hafi náð 25 ára aldri frá skráningarárgerð hans. Bifreiðagjöld falla þá niður og hægt er að fá fornbílatryggingu.
Þar sem landið er lítið og erfitt að hafa marga flokka af eldri bílum hefur klúbburinn miðað við þessi 25 ár og er ekki að skilgreina fornbíla nánar eins og er gert víða erlendis þar sem oft er miðað við 25 ár, 40 ár og síðan eldri. |
| |
| Hvernig er skoðun á fornbílum? |
| |
| Í janúar 2009 tóku gildi nýjar skoðunarreglur fyrir bíla, en þær breytingar sem snúa að fornbílum, 25 ára og eldri, eru að skoða þarf fyrir 1. ágúst óháð endastaf í númeri. Auk þess þurfa fornbílar ekki að mæta í skoðun nema annað hvert ár. Ef ekki er mætt með bíla til skoðunar verður beitt sektarviðurlögum, en þeim sem eru með bíla í langtímageymslu eða uppgerð skal bent á að hægt er að skrá þá tímabundið úr umferð (fá rauðan miða), en þannig má komast hjá því að glata númeraplötum. Bent skal á að skoðunarreglur fyrir fornbíla virka ekki nema búið sé að skrá þá sérstaklega sem fornbíla. Ef það hefur ekki verið þegar gert má finna eyðublað US 115 á heimasíðunni us.is, fara síðan með það á Umferðarstofu og greiða 500 kr. Skoðunardagur Fornbílaklúbbsins og Frumherja í maí verður að sjálfsögðu áfram á dagskrá, enda er alltaf best að vera á nýskoðuðum fornbíl fyrir sumarið. |
| |
| Á
ég heima í FBÍ þó að minn
bíll sé ekki orðinn 25 ára? |
| |
| Allir geta gengið
í FBÍ, en bara þeir bílar sem orðnir
eru 25 ára fá mætingarpunkta í ferðum
FBÍ. |
| |
| Má
ég koma með í ferðir FBÍ ef ég
er á yngri bíl en 25 ára? |
| |
| Almenna reglan er að
bílar 25 ára og eldri fá mætingarpunkta
í ferðum. Bílar sem hafa náð 15
ára aldri eru velkomnir með, en verða að
halda sig aftast í skipulögðum ferðum og
er þeim ekki stillt upp í sýningum. Eins
geta félagar komið á einkabílum í
lengri ferðir, en aldrei með í keyrslum. |
| |
| Þarf ég að
vera félagi til að koma með í keyrslu? |
| |
Ekki nauðsynlegt, en
auðvitað skemmtilegra að vera félagi !
Margir kynnast starfi FBÍ með því að
koma með sem gestur eða kíkja á okkur
í keyrslu eða á fundi, og enda oftast sem
félagar. |
| |
| Er hægt að fá
FBÍ félaga til að koma á bílum
á uppákomur? |
| |
| Fornbílamenn koma
á margar samkomur og skemmtanir á hverju sumri.
Almenna reglan er sú, að félagar mæta
á fornbílum sínum á viðburði,
ef óskað er eftir því, sem eru skipulagðir
af söfnum, bæjarfélögum eða líknarfélögum
. Ef óskað er eftir fornbílum á sérstakan
viðburð er best að hafa samband við ferðanefnd
eða formann FBÍ með mánaðar fyrirvara, greiðsla til félaga er eftir samkomulagi. Bílar eru ekki í notkun yfir vetur. |
| |
| Hvað
er árgjaldið hjá FBÍ? |
| |
| Árgjaldið er 5.000
kr. |
| |
| Hvernig
get ég fengið steðjanúmer? |
| |
| Bílar eldri en 25
ára (til 1989) geta borið gömlu steðjanúmerin.
Fyrst þarf að finna laust númer og skrá
það á viðkomandi bíl hjá
Umferðarstofu.
Eftir það er hægt að
panta plötur hjá FBÍ. |
| |
| Hvað
eru margir félagar í FBÍ? |
| |
| Fjöldi félaga
er 900, í mars 2009. |
| |
| Hvað
er meðalaldur félaga? |
| |
| Meðalaldur félaga
er 52 ár, yngsti er 15 ára og elsti 89 ára. |
| |
| Eru
konur á FBÍ? |
| |
| Margar konur eru í
FBÍ og fer þeim fjölgandi. Fornbílar
hafa samt verið meira "stráka" áhugamál,
en eftir því sem fleiri bílar ná
25 ára markinu fjölgar konum sem eiga góða
fornbíla. Einnig eru eiginkonur félaga duglegar
að taka þátt í starfinu og boðið
er upp á maka-aðild þar sem maki greiðið
hálft árgjald en hefur öll fríðindi
og annað sem sem félagar njóta. |
| |
| Eru
þetta allt eldgamlir bílar sem félagar eiga? |
| |
Margir halda að í
FBÍ séu allt gamlir kallar sem eru á þriggja
hjóla gufuknúnum vögnum eða felgur séu
úr timbri. Elstu bílar félaga eru frá
um 1910. Sé skoðuð bílaeign félagsmanna,
eru árgerðirnar 1960 - 1979 mest áberandi.
Stefna FBÍ er nú einu sinni varðveisla eldri
ökutækja og er pláss fyrir allar árgerðir
og tegundir, nauðsynlegt er að sem breiðastur gangfær
bílafloti sé til svo hægt sé að
sýna lifandi sögu bílsins hér á
landi. |
| |
| Hverjir
fá að kjósa á aðalfundi FBÍ? |
| |
| Allir þeir sem hafa
greitt árgjald þremur vikum fyrir aðalfund
geta kosið. |
| |
| Hverjir
geta boðið sig fram í stjórn? |
| |
| Hafi félagi verið
virkur í minnst tvö ár samfellt og náð
20 ára aldri, getur hann boðið sig fram í
stjórn. Kjörnefnd setur upp kjörlista fyrir stjórnarkjör
á aðalfundi með nöfnum a.m.k. fimm kjörgengra manna með hliðsjón
af tillögum sem berast kunna frá félagsmönnum. Komi fram tillaga
um kjörgengan mann á lista frá 20 félagsmönnum eða fleiri og
eigi síðar en viku fyrir aðalfund, er kjörstjórn skylt að virða
þá tillögu. |
| |
| Hverjir
geta starfað í nefndum? |
| |
Allir geta starfað í
nefnd, en nefndarformenn velja nefndarmenn með sér.
Til að komast í viðkomandi nefnd er best að
kynna sér starfsemi
hennar og gefa til kynna áhuga á að starfa
fyrir hana. Félagar eru mislengi í nefndum allt
eftir því hvaða tíma hver hefur og er
alltaf þörf fyrir að fá nýja menn
inn. |
| |
| Fær
einhver greidd laun hjá FBÍ? |
| |
| Allt starf í FBÍ
er sjálfboðastarf. Eðlilega er vinnuálag
stjórnar og nefndarmanna meira, en allir félagar
leggja fram þá tíma sem þeir geta
í starfið. Kallað er eftir almennum félögum
til starfa í stærri verkefnum. |
| |